Þóra Björg Jónsdóttir er stofnandi og eigandi STOKKU samvinnustofu. Hún hefur reynslu af fjölbreyttum verkefnum á sviði lögfræði, stjórnendaþjálfunar og -ráðgjafar og breytingastjórnunar.
Þóra er lögfræðingur og hefur lokið námi í stjórnendamarkþjálfun. Auk þess hefur hún aflað sér þekkingar á verkefnastjórnun og sáttamiðlun.
Áhugasviðin eru mörg: Útivist, heildræn heilsa, málefni barna og fjölskyldna, forysta, mannlegir þættir breytinga, sjálfbærni og velsæld í samfélögum.