STOKKA

samvinnustofa

Skoðum heildarmyndina og tengslin.

Sköpum lausnir sem skipta máli.

STOKKA samvinnustofa er vettvangur fyrir leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu til að fást við margþættar áskoranir, ná yfirsýn og greina tækifæri til umbóta.

Með markvissri samvinnu er alltaf hægt að finna lausnir, bæði til að bregðast við vanda og móta heildstæða stefnu til lengri tíma.

Skilningur, samvinna og samábyrgð er leiðarljósið þegar við vinnum með fjölþættan vanda. Þannig getum við náð auknum árangri, meðal annars í þjónustu við börn og ungmenni.

Heildstæð nálgun skapar tækifæri til að auka gæði þjónustu og sýna ráðdeild í opinberum rekstri.

Ávinningurinn

betri og skilvirkari þjónusta

færri afleiddar áskoranir

ábyrg meðferð opinberra fjármuna

aukið traust innan stjórnkerfis og gagnvart því

Heildstæð nálgun

Til þess að skilja margþættar áskoranir er mikilvægt að horfa á heildarmyndina. Við þurfum að ná yfirsýn og fá innsýn í einstaka þætti og skoða tengslin á milli fólks, kerfa og ákvarðana.

Heildstæð nálgun inniheldur meðal annars skoðun á:

  • gildum, viðhorfum og venjum sem móta opinber kerfi

  • þörfum notenda þjónustu og afleiddum áhrifum ef þeim er ekki mætt

  • meðferð opinberra fjármuna - horfum á ríki og sveitarfélög sem eina heild

    Sameiginlegur skilningur

Við þurfum hugrekki til að hlusta á ólík sjónarmið og vera opin fyrir nýjum vinnubrögðum í verkefnum sem þarfnast aðkomu og þátttöku fólks með ólíka hagsmuni, þekkingu og reynslu.

Reglulegt mat á árangri, ný þekking og skilningur á samspili áhrifaþátta skiptir máli svo við lærum af fyrri reynslu og nýtum þann lærdóm við stefnumótun og þróun þjónustu.

Við náum bættum árangri með því að fjarlægja hindranir sem skapa vandamál og sóa fjármunum og leiða þannig til nýrra áskorana fyrir notendur og starfsfólk.

Tölum saman

Vinnum saman að lausnum sem skapa virði fyrir fólk og samfélag.

Hefjum samtalið í dag!